Litlar dúllur
22.08.2007 00:24:05 / litlaosk

Hverjum er ég lík?


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 12:20:24 / litlaosk

Hahaha...

Ég horfði á þetta og hló mig máttlausa með seríósinu í morgun! Aumingja barnið er örugglega blátt og marið eftir lætin í magavöðvunum :)

Þið sem eruð jafnmiklir stríðnispúkar og ég munuð fíla þetta í tætlur. Mér fannst vinkonurnar tvær í enda myndbandsins sérstaklega skemmtilegar!

Enjoy!


» 8 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 19:15:30 / litlaosk

Dagurinn í dag!

Hæ hó!

Dagurinn í dag var góður. Hann karl bóndi minn er í helgarfríi sem er frábært :) Við ákváðum að sofa út og sváfum til 11, það var sko gott. Halli las blöðin, drakk kaffi og borðaði súkkulaðiköku en ég skrifaði smá ritgerð. Við skelltum okkur svo í sund klukkan 3 sem var aldeilis hressandi. Ferðinni var svo heitið í Smáralindina þar sem keyptir voru nokkrir náttgallar á krílið og handklæði handa því. Við fórum svo í Byko og keyptum lakk á barnarúmið, en við ætlum að reyna að lakka það á morgun :) Í kvöld verður svo kósýkvöld. Fajitas pönnukökur í matinn og snakk og nammi með Casino Royale, nýjustu Bond myndinni!

Ég horfði á Gettu betur í gær eins og flestir Íslendingar. Það var sko aldeilis skemmtilegt en líka mjög erfitt. Ég var alveg að fara yfirum af stressi. Þetta var gríðarlega spennandi keppni sem endaði vel fyrir MR-inga en ekki eins vel fyrir MK-inga. Ég var stödd í salnum fyrir nokkrum árum í mjög svipaðri úrslitakeppni. Þá sigraði MR líka í bráðabana. Ég hef held ég aldrei verið eins spennt og þá en heldur aldrei skemmt mér eins vel og þá. Þetta er aldeilis skemmtilegt :)

Ég verð samt alltaf pínu sár þegar MR vinnur vegna þess að svo margir verða fúlir og reiðir yfir því. Fólk segir MR-ingana ekki eiga sigurinn skilið og að þeir séu montnir. Ég verð bara sár þegar ég heyri svona. Af hverju eiga MR-ingarnir þetta eitthvað minna skilið en aðrir? Er þetta ekki bara sanngjörn keppni þar sem besta liðið vinnur?

Litla Ósk


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 15:05:32 / litlaosk

Afmælið mitt!

Hæ, hæ!

Ég á afmæli bráðum eða þann 25. mars og þá verð ég 24 ára! Vá hvað maður er að verða fulliorðinn eitthvað :)

Ég ákvað að misnota aðstöðu mína og láta óskalistann minn hérna inn :)

Loðvettlinga

Góða húfu

Gott straujárn

OC þætti, á enga

Maskara (Kanebo, 38° svartan)

Flotta handtösku.

Kveðja,

Lydía bumbulína.


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 22:54:26 / litlaosk

Meðmæli

Ég mæli með:

Kvikmyndinni Pursuit of happiness.

Kvikmyndinni Little miss sunshine.

Að vera ólétt, það er frábært.

Að fá sér kolkrabba í sturtubotninn.

Kveðja,

Litla Ósk


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 13:39:53 / litlaosk

Betra er seint en aldrei!

Ég er ógeðslega léleg í að blogga hér en ég er ógeðslega dugleg að blogga inni á hinni síðunni minni. Við Halli og krílið litla/stóra eigum nefninlega síðu inni á barnaneti. Mér finnst miklu skemmtilegra að hugsa um hana heldur en þessa því allt sem tengist bumbubúanum sætasta er svo skemmtilegt. Það er tengill inn á hana hér til vinstri ef einhver hefur áhuga :)

Allavega...ég er að byrja í skólanum nú á næstu dögum og á fullu að reyna að finna eitthvað til að skrifa BA ritgerð um. Hafið þið einhverjar brjálaðar hugmyndir?

Annars er helst í fréttum að við Halli ætlum að fara í Bónus á eftir og fylla allar matarkistur á heimilinu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 19:40:47 / litlaosk

Obbobobb...vandamál!!!!

Ég á við stórt vandamál að stríða. Ég er pakksödd (af því ég borðaði eitt horn með skinku, eitt rúnstykki og hálfan lítra af appelsínusafa) en ég er að fara að borða á American Style eftir hálftíma! Hvernig á ég að leysa þetta?

Ef einhver veit hvenær úrslitaþátturinn í So You Think You Can Dance er viljið þið vinsamlegast segja mér það :)

Litla Ósk

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 20:15:05 / litlaosk

Iss...lélegt hjá okkur!

Ég hélt að við Holtsbúðingarnir værum rosalega dugleg að skreyta. En nei...ekki aldeilis. Við erum bara með 1.200 rauðar perur í gaðinum en á jólatrénu á Rockefeller Centre eru 30.000 perur. Svona er bara lífið. Við vinnum bara þessa Ameríkana næst.

Smá svekkelsisfréttir. Við Halli vorum boðin á Rockstar tónleikana annað kvöld en af því að við erum svo dugleg að ætla að passa mágkonu mína á morgun komumst við ekki :(
Ég ætla samt ekki að gráta mikið af því að okkur er boðið á jólatónleika Fíladelfíu í næstu viku. Það verður örugglega rosalega gaman og ég hlakka til :)

Yfir og út,
Litla Ósk

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 21:26:51 / litlaosk

Kompás og jólin

Vissuð þið að jólin eru að koma?
Það eru bara tvær vikur í aðventu og sex vikur í aðfangadag. Ég er farin að hlakka til að kveikja á aðventukransinum, láta aðventuljósið út í glugga, kveikja á dagatalakertinu og að spila jólalög. Það er víst búið að setja reglur á heimilinu um að það megi ekki spila jólalög fyrr en fyrsta sunnudag í aðventu. Svona er að búa með laganema...endalausar reglur :)

Annars langaði mig að minna ykkur, kæru lesendur, á að hægt er að kjósa um besta sjónvarpsþáttinn fyrir Edduna á visir.is. Þar er einn svarmöguleiki Kompás og mæli ég sterklega með þeim möguleika :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 19:36:51 / litlaosk

Kósý brjálað veður

Dagurinn í dag var akkurat eins og sunnudagar eiga að vera. Brjálað veður en hlýtt og góður matur inni. Ég var inni í allan dag, þreif soldið og lagaði til í skúffum. Svo sýndi ég hvað ég er ógeðslega myndarleg húsmóðir og bakaði skinkuhorn handa bóndanum. Efri hæðingarnir bökuðu svo köku og við slógum saman í allsherjar Holtsbúðarveislu. Flottari og notalegri Holtsbúðarveislu er sko ekki að finna í manna minnum.

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 23:05:08 / litlaosk

Föt og lönd!


create your own visited country map

Sko, þetta eru öll þau lönd sem ég hef komið til. Þau eru 14 talsins og 6 % af löndum heimsins samkvæmt þessari heimasíðu. Mér finnst þetta nú bara nokkuð góður árangur hjá mér :)

Eins og allir vita á ég alveg rosalega myndarlegan og sætan kærasta. Það er mjög erfitt að finna föt á svona ótrúlega sæta menn og við höfum sko farið margar fýluferðir í Smáralindina eða Kringluna. En það er greinilega aðalmálið að fara með hann dauðþreyttan eftir næturvakt og tveggja tíma svefn í Smáralindina, því í dag fundum við fullt af töff fötum. Við vorum ekkert smá glöð og keyptum fullt :) Ég keypti mér meira að segja líka ullarjakka, ógeðslega flottann.

Það sem er annað að frétta frá mér er að ég er að fara til Kanarí,  nánar tiltekið Tenerife, í janúar. Það er eftir nákvæmlega þrjá mánuði og tvo daga. Ég er ekkert smá spennt :)

Takk fyrir kaffið,
Litla Ósk

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 22:57:11 / litlaosk

Alltaf að þykjast vera hugsuður :)

Mér finnst þetta frábær grein og í henni kemur fram það sem ég er alltaf að segja...samanber titillinn á þessari síðu.

http://www.femin.is/article.asp?art_id=2787

P.s. Ég minni á gestabókina og á kommentin...það er alltaf gaman að fá komment :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 23:14:20 / litlaosk

:)

Nýjustu fréttir eru að ég er orðin dökkhærð og er komin með flottar neglur :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 20:58:09 / litlaosk

Viðreyningur :)

Tíhíhí...þið megið ekki segja Halla en ég held að ég hafi hálfpartinn reynt við karlmann í Sautján áðan :)

Þannig var nú málið með vexti að ég sá þar strák sem ég hélt að væri kærasti vinkonu minnar. Ég horfið þess vegna ótrúlega mikið á hann og brosti til hans en hann varð bara skrítin á svipinn. Ég fór að efast um að þetta væri sá sem ég hélt og horfið í kring um mig til þess að reyna að finna vinkonu mína. Ég fann hana ekki en var samt ennþá viss um að þetta væri kærastinn hennar og horfði ennþá meira á hann og brosti ennþá meira til hans. Þá koma á hann hræðslusvipur og svona "vá, þú ert geðveik" svipur...svo ég hætti bara að brosa til hans en gekk eldrauð og skömmustuleg í burtu. Ég komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri líklega einhver annar en sá sem ég hélt :)

Nú ætla ég að fara að horfa á Courting Alex og prjóna lopapeysu á Barböru.

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 13:38:01 / litlaosk

Laugardagur

Hæ, hæ!

Ég hef lengi dreymt um það að eiga matjurtagarð...og nú hefur sá draumur ræst. Mörgum finnst ég kannski vera skrítin en mér finnst æði að gróðursetja, reita arfa og sjá plönturnar vaxa. Ég er búin að láta niður ca 75 kartöflur og gulrótafræ og bráðum ætla ég að setja niður ýmis konar kál, rófur og næpur. Ohh...þetta er yndislegt :)

En nú fer að líða því að heimsóknir á síðuna verði 1000 talsins. Ég hef ákveðið að sá sem verður númer eitt þúsund fái verðlaun. Verðlaunin eru engin önnur en eitt heimatilbúið hrós frá mér...svo það er til mikils að vinna :)

Síja,
Litla Ósk

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2